Blogg
...endilega láttu heyra í þér
4.11.2008
Batnandi mönnum er best að lifa
Ég hef alltaf sterkar taugar til Bandaríkjanna enda bjó ég þar í eitt ár á síðasta áratug, á þeim tíma var Clinton við völdin. Ég vandist því að fólk í BNA skiptist í tvær fylkingar varðandi stjórnmálaáhuga, annað hvort hafði fólk ekki hundsvit né áhuga á því en hins vegar mjög mikin áhuga og voru þeir sömu mjög áhugasamir um mig og mitt þjóðerni. Ég verð að segja að mér er alltaf illa við það þegar fólk talar illa um fólkið í BNA vegna þess að ég hef aðra sýn á það en aðrir, enda bjó ég þarna. Það er vissulega til mikið af sauðum þar, ég dreg ekkert undan því, en ég hef séð marga sauðina hérna á Íslandi líka. Hvaða sauðir voru það sem komu þjóðinni á kollinn....?!?
Eldra efni
Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 302
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 308787
Samtals gestir: 72857
Tölur uppfærðar: 7.1.2009 13:41:50
