Blogg

...endilega láttu heyra í þér

9.10.2008

Spilaborgin fest með kennaratyggjói


Jæja, þá er það orðið skjalfest að síðasti bankinn er yfirtekin, stærsti banki Íslands Kaupþing.  Maður spyr sig, var eitthvað annað en kennaratyggjó að halda þessari spilaborg saman?

Ég hef verið að hlusta á stjórnmálamenn og bankamenn undanfarna daga og það er í raun bara eitt sem hafir valdið mér hugarangri.  Ef ekkert var að öll þessi ár, af hverju hrynur kerfið núna?  Jú, það var örugglega tengt brjálæðinu sem gengur yfir heiminn í dag, gott og vel, það er sennilega það sem kom því af stað en hvað segir þetta okkur um fjármögnun fjármálalífs á Íslandi?  Ástæða þess að ég velti þessu upp er vegna þess að allir urðu bankarnir þrota vegna lausafjárstöðu, sem er sennilega lógískasta skýringin.  Af hverju var allt lagt í sölurnar fyrir hálftóma buddu lausafjár?  Af hverju lögðu bankar ekki betur fyrir í góðærinu?????

Það er nefnilega þetta heimskulega hugarfar í Íslendingum sem hefur orðið okkur að falli.  Maður er ekki maður með mönnum nema maður sé veðsettur 110% og keyri um á 15 milljón króna bíl.  Ég gef skít í svona hugarfar...

Skrifað 9.10.2008 kl. 8:44 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290923
Samtals gestir: 70464
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:29:00