Blogg

...endilega láttu heyra í þér

18.9.2008

Gullkorn úr læknaskýrslum

 - Að höfðu samræði við lækni féllst hann á að koma sjálfviljugur inn.

 - Á öðrum degi var hnéð betra, og á þriðja degi var það alveg horfið.

 - Daginn fyrir innlögn borðaði hún kvöldmat á eðlilegan hátt, með kjötbollum.

 - Eðlileg augnskoðun fyrir utan sérkennilegt andlitsfall.

 - Hún hefur þroskast eðlilega framan til.

 - Hún rann til á svelli og virðist að lappirnar á henni hafi farið í sitt hvora áttina í  desember.

 - Húðin var rök og þurr.

 - Nú er svo komið fyrir henni að hún getur að mestu hjálpað sér sjálf.

 - Sjúklingur á vanda til að fara Austur í sveit um helgar. Þar datt undan henni hestur.

 - Sjúklingur var í morgun að drekka te, og borða mais þegar að bar mann sem heitir Kristmundur.

 - Skoðun við komu leiðir í ljós unglingspilt.

 - Tekin var mynd af sjúklingi sem sýndi breytingar í Hafnarfirði.

 - Við skoðun á sjúklingi kemur fram áberandi kyndeyfð.

 - Við skoðum eru engar eitlastækkanir að gagni.

 - Það sem fyllti mælinn var þvagleki....

 - Það vottar fyrir gyllinæð hægra megin á kálfa.

 - Þegar hann var lagður inn hafði ör hjartsláttur stoppað og honum leið betur.

 - Þessi maður veit ekkert um skyldleika í ætt.

 - Sjúklingur batnar ef lagst er ofan á hann.

 - Sjúklingur er ekki þekktur fyrir að fremja sjálfsmorð.

 - Sjúklingur er fertug, að öðru leyti ekkert áhugavert.

 - Sjúklingur er tilfinningalaus frá tá og niður úr.

 - Sjúklingur fékk sér vöfflur í morgunmat, en var kominn með lystarstol um hádegi.

 - Sjúklingur fékk þá langsótt kvef.

 - Sjúklingur fær verki í bringuna ef hún liggur á vinstri hlið lengur en í 1 ár.

 - Sjúklingur hefur aldrei fundið fyrir þessum verkjum nema þegar hann vaskar upp í sumarbústað en er ráðlagt eftirlit ef verkirnir koma fram við önnur tækifæri.

 - Sjúklingur hefur átt við gott heilsufar að stríða.

 - Sjúklingur hefur formlegar hægðir.

 - Sjúklingur hefur skilið hvítu blóðkornin eftir á öðrum spítala.

 - Sjúklingur hefur verið mædd sl. 5 ár....

 - Sjúklingur hefur verið niðurdreginn alveg síðan hann byrjaði að  hitta mig árið 1983.

 - Sjúklingur datt á parketgólfi og bar fyrir sig hendina með þeim árangri að hún brotnaði.

 - Sjúklingur hefur verið í vandræðum með gervifótinn en hann hefur haft fjóra fætur frá því að hann lenti í slysinu, en þann síðasta  fékk hann í apríl sl.

 - Sjúklingur tekur engin lyf en magnyl þess á milli.

 - Sjúklingur tárast og grætur stöðugt, og virðist líka vera niðurdreginn.

 - Sjúklingur var í góðu ásigkomulagi þangað til að flugvélin hans hrapaði.

Skrifað 18.9.2008 kl. 8:12 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

1 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290923
Samtals gestir: 70464
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:29:00