Ég er pirraður, ég hringdi til Hollands áðan til að fá út hvort einum (rándýrum) hörðum diski gæti verið skipt út vegna bilunnar en það var ekki hægt. Hann sagði þar sem Ísland væri ekki í Evrópusambandinu gengi það ekki upp, þetta var næg ástæða fyrir mig til að vilja ganga í Evrópusamabndið. Jújú, evran líka og allt það, en það er í mínum augum smáatriði...
Skrifað 25.6.2008 kl. 11:32 af Garðar Valur Hallfreðsson