Blogg

...endilega láttu heyra í þér

17.12.2007

Sumir dagar

Sumir dagar eru einhvern vegin svo fyndnir, þetta fer yfirleitt eftir því hvernig maður vaknar á morgnanna.  Í morgun má eiginlega segja að ég hafi sofið yfir mig, ég vaknaði semsagt þegar Einar kom og spurði eftir mömmu sinni (hún var þá farin í vinnuna).  Einhvern vegin hafði mér tekist að snúza fram eftir og klukkan orðin rúmlega átta, ég fer nefnilega í vinnuna í kring um níu leytið.  Það var þó engin skaði skeður því ég gat drifið mig af stað en þegar maður þarf að brauðfæða og klæða 2 börn tekur allt sinn tíma.

Ég kveikti á imbanum og skellti morgunkorni í skál fyrir strákana, var að kaupa mér tíma til að komast í sturtu.  Þegar sturtuferðin er hálfnuð kemur yngri sonur minn inn og heimtar að fara í bað líka, til að að láta hann hafa eitthvað fyrir stafni meðan ég rakaði mig og kæmi Einari í föt ákvað ég að gefa það eftir og skellti drengnum undir bununa.  Ég kláraði að klæða mig í vinnufötin, takið eftir að vinnufötin mín eru jakkaföt og bindi, vippaði mér þaðanaf í að koma eldri drengnum að verki og klæða sig í fötin.  Heyri svo öskur inni á baði, þá hafði yngri strákurinn kúkað í baðið en þar flutu 3 drelar og tveir kafbátar höfðu eiginlega náð að leysast upp og gert vatnið ljósbrunt.  Fyrir vikið hófust þar hreinsunarstörf, klæddi yngri strákinn og skipaði fyrir að nú skildum við fara í útifötin.

Klukkan var núna orðin níu og ég farin að ókyrrast.  Dreif strákana út en fattaði svo að ég átti eftir að borða morgunmat, samdi við strákana að bíða í garðinum meðan pabbi færi inn og fengi sér mjólkurglas og eitthvað lítið í gogginn.  Vegna hlákunnar var garðurinn orðin að einu drullumalli, sérstaklega fyrir framan innganginn á húsinu, strákunum tókst auðvitað að stíga beint í drulluna og drulla sig út.  Nú voru menn festir í bílstólana og bíll ræstur.  Ég hafði ekki tekið eftir því en ruslakarlarnir voru greinilega nýkomnir og búnir að draga fram ruslatunnuna (beina fyrir aftan bílinn minn).  Vegna þess að bíllinn minn er hár og stór sá ég ekki tunnuna í baksýnisspegli og keyrði á hana!

Ja hérna, sumir dagar.  Samt tókst mér að horfa á björtu hliðarnar á þessu öllu saman og mætti bara seint í vinnuna, isss það skiptir engu máli, svona er bara lífið.

Skrifað 17.12.2007 kl. 12:41 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit
Til baka

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 302
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 308787
Samtals gestir: 72857
Tölur uppfærðar: 7.1.2009 13:41:50

Stjórnmálaflokkar?

 Sjálfstæðisflokkur

 Samfylking

 Framsóknarflokkur

 Vinstri Grænir

 Frjálslyndi flokkurinn

 Einhvern annan flokk

 Ég myndi ekki kjósa

 Skila auðu atkvæði


Sýna niðurstöður

Tenglar