Blogg
25.11.2007
Og þetta á að gera....?
Það verður forvitnilegt að fylgjast með framvindu slíkra mála í Frakklandi(sjá þennan link á mbl). Frakkar eru oft mjög sérstakir þegar kemur að alls konar löggjöfum, þeir ganga yfirleitt hvað harðast fram í mörgu. Við getum borið það saman við hryðjuverkarlöggjögina þar í landi en þeir eru sú evrópuþjóð sem gengur hvað harðast gegn slíkum ógnum. Við heyrum vanalega ekki miklar frásagnir um hryðjuverkarógn í Frakklandi, þeir einfaldlega leyfa þeirri ógn ekki að viðgangast. Þeir geta t.d. haldið einstaklingi endalaust án dóms og laga ef grunur leikur á að hann sé hryðjuverkarmaður, það hefur verið svoleiðis löngu á undan hinun svokallaða "stríði gegn hryðjuverkum", löngu á undan 11.september 2001, þeir einfaldlega eru með gríðarlega stranga löggjöf hvað þetta varðar.
Hvað varðar þessa löggjöf, þeir munu sjálfsagt hræða einhverja frá þessum athæfum en ég er ávallt þeirrar skoðunnar að netinu verði aldrei stírt. Kínverjar eru stöðugt að rembast, af hverju ætti Frökkum að ganga eitthvað betur? Mér er spurn, hvernig tekur maður netið af einhverjum? Er þetta ekki eins vitlaust og að segja við manneskju, ég ætla að taka af þér ástina? Mér finnst svona löggjöf vera bjánaleg.
Það
sama á við um þetta blessaða istorrent-mál hérna á Fróni, ég bíð enn
spenntur eftir að vita hver ákæruliðurinn verður gegn þessum Svavari
(eða hvað hann nú heitir). Mér finnst menn ansi uppátækjasamir ef þeim
tekst að kæran hann fyrir að eiga heimasíðu með linkum. Það er hægt að
fara ýmsar leiðir til að "vinna með" þessai tækni og að leggja boð og
bönn er alls ekki eitt þeirra. Horfum á tonlist.is og rokk.is en það
eru heimasíður sem gera það gott, eða ég held alla vega. Lítum upp til
hljómsveitarinnar Radiohead, þeir "selja sig sjálfir". Látum gott
heita.
Eldra efni
