Blogg
...endilega láttu heyra í þér
20.6.2007
Flakka um landið
Við fjölskyldan höfum verið að flakka um landið, höfum undanfarna daga verið í Selvík sem er við Þrastarlund ekki svo langt frá Selfossi. Höfum það notalegt í sumarbústað í eigu Landsbankans, flottur og notalegur bústaður, potturinn hefur verið mikið notaður. Maður vill oft gleyma því hvað það getur verið gaman að ferðast um Frónið, þetta land okkar er alveg yndislega fallegt og ferskt. Við keyrðum síðastliðin föstudag suðurleiðina áleiðis í bústaðinn og er það leið sem maður fer hvað sjaldnast, yfirleitt brunar maður norðurleiðina, af einhverri óskýranlegri ástæðu. Landslagið á suðurleiðinni er meiriháttar.
Við höfum svo verið að flakka um svæðið hér í kring með systur minni á mág, þau komu einmitt til að vera með okkur í bústaðnum í nokkra daga. Við tókum t.d. ferðamannapakkann um Gullfoss og Geysi, fórum þar á undan á Þingvelli og skoðuðum okkur um þar (nota bene ég hef aldrei komið á Þingvelli áður, hálfskammast mín fyrir það). Ég og Himmi (mágur) fórum í dag og veiddum í Þingvallavatni í alveg yndislegu veðri, samt sem áður voru fiskarnir sem dregnir voru á land alls ekki stórir, bara eiginleg síli. Dagurinn var samt sem áður alveg frábær. Á leiðinni í bústaðinn komum við við í Sólheimum og ég verð að segja að sá staður kom mér hreint á óvart, alveg svakalega fallegt þarna! Ég mæli eindregið með því að fólk kíki þar við næst þegar það á leið hjá.
Á heildina litið hefur þetta ferðalag okkar verið alveg frábær tími, rólegur og notalegur. Maður lítur í bók annað slagið, eitthvað sem ég geri eiginlega aldrei þar sem ég eyði flestum mínum fríu stundum í tölvuna. Við spilum minigolf og höfum ótakmarkaðan aðgang að bátum hérna, útivistin er hreint frábær. Ætli við skellum okkur svo ekki bara til Reykjavíkur á föstudaginn kemur til að vera í örfáa daga, sjáum svo til hvað setur....

Eldra efni
Flettingar í dag: 146
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 302
Gestir í gær: 43
Samtals flettingar: 308793
Samtals gestir: 72857
Tölur uppfærðar: 7.1.2009 14:16:16