Blogg
...endilega láttu heyra í þér
15.6.2009
Þegar almenningi er vísvitandi gert erfitt fyrir
Allt kom fyrir ekki, en fyrir helgi (á miðvikudag) ætlaði ég að panta mér tíma hjá lækni með því að senda netpóst á netfangið sem ég fann á símaskránni á netinu, var svo ekki búin að fá neitt svar í dag (mánudag) en þá ákvað ég að slá á þráðinn og heyra í þeim. Það svaraði mér einhver elskuleg stelpa sem tjáði mér að þetta tiltekna netfang sem ég hafði sent á er í raun ekki fylgst með, alla vega ekki mikið að svo stöddu. Ég spurði hvað netfangið hjá þeim væri en þá var fátt um svör, ekki nema ég vildi senda fyrirspurnina á hennar netfang sem ég auðvitað vildi ekki (hvað ef þessi sama manneskja er svo í fríi í framtíðinni). Að sjálfsögðu bauð hún mér að hafa samband við einhvern símleiðis upp á það að panta tíma hjá lækni en þar sem ég var nú þegar orðin þver og þrjóskur þá þáði ég það ekki. Ég bað hana vinsamlegast að opna netfangið sem er lítið sem ekkert notað (en samt auglýst) og lesa póstinn frá mér, ásamt öllum þeim sem hafa í góðri trú sent netpóst á það netfang.
Ég vill samt taka fram að ég hef ekkert á móti starfsfólki HSA eða neitt af slíku tagi, mér finnst bara svona óþarfa hringekjur til algjörrar óþurftar. Fyrir hvern er svona hringleikahús gert því það var alla vega ekki í mína þágu, og hana nú!?
4.6.2009
Sjómannadagshelgin 2009 á Eskifirði
Sjómannadagshátíð á Eskifirði 2009
Fimmtudagur - á Mjóeyri
Glæsileg skemmtiatriði á sviðinu:
HRAFNA IDOLSTJARNA - RAGGI Í BRÚ - HREIMUR OG VIGNIR - EINAR EINSTAKI - STIGAMENN - LEIKSKÓLAKÓRINN OFL OFL.
Fimmtudagur - á Mjóeyri
- Kl. 18:00 Sjósund fyrir alvöru heljarmenni og valkyrjur, heitur pottur i fjörunni eftir sundsprettinn.
- Kl.19:00 Grill á staðnum - Mætum með eigin grillmat. Meðlæti, sósur og gos á staðnum.
- Kl. 20:00 Nýtt eldstæði vígt - varðeldur og lifandi tónlist.
- Kl. 17:00-19:00 Diskótek fyrir 11 ára og yngri í félagsmiðstöðinni Knellunni - hvetjum krakka af öllum fjörðum til að mæta. 200 kr. aðgangseyrir
- Kl.18.30 KFF og ÍR á Eskifjarðarvelli - mætum á völlinn og hvetjum strákana okkar áfram..!!!
- Kl. 20:30-23:00 Diskótek fyrir 12 - 16 ára í Knellunni. 200 kr. aðgangseyrir.
- Kl. 21:30 Stórtónleikar á frystihúsbryggjunni - Raggi í Brú, Local, Three Amigos & Summary of sound.
- Kl. 21:00-24:00 Ball í Valhöll - STRÁKARNIR HENNAR STÍNU - spila gömlu og góðu rokklögin og sígilda harmonikkusmelli. Miðaverð kr.1.500.-
- Kl. 00.30 - 03.00 DJ í Valhöll
- Kl. 9:00-12:00 "Stálskipasmíði" í Hamri - Strákarnir í Hamri taka vel á móti öllum krökkum og hjálpa þeim að smíða báta.
- Kl. 10:00-12:00 Hestamannafélagið Freyja bíður öllum á hestbak inní reiðgerði.
- Kl. 13:00 Sigling með flaggskipum íslenska flotans, Aðalsteini Jónssyni og Jóni Kjartanssyni - glaðningur fyrir börnin.
- Kl. 14:00 Kaffisala eldri borgara í Valhöll.
- Kl. 15:00 Dagskrá út á Mjóeyri.
- - Kappróður, skráning liða hjá Jens G. jens@fiskimid.is - 899 4348. Takmarkaður fjöldi. Bátarnir settir niður á miðvikudag og verða lausir til æfinga fram á laugardag.
- - Belgjaslagur.
- - Reipitog milli Eskfirðinga og Reyðfirðinga.
- - Sjómennskubikarinn - munu Eskfirðingar halda titlinum?
- - "Stálskipum" úr bátasmíðinni fleytt.
- - Sunddeild Austra selur pylsur og gos.
- - Forsala miða á ball, kr. 2200.- annars kr. 2500 við hurð.
- Kl. 23:00 Stórdansleikur í Valhöll - Land og Synir - miðaverð kr. 2500.- 200 krónur af miðaverði renna til minningarsjóðs um Guðlaug Magna frá Fáskrúðsfirði.
- Kl. 11:00 Sjómannadagsmessa.
- Kl. 12:00 Athöfn við minningarstyttu um drukknaða sjómenn - hátíðarræða - sjómaður heiðraður - tónlistaratriði.
- Kl.12:30 Dorgveiðikeppnni á bræðslubryggjunni - Munið björgunarvestin !!
- Kl. 14:00 Í MIÐBÆ ESKIFJARÐR..
Glæsileg skemmtiatriði á sviðinu:
HRAFNA IDOLSTJARNA - RAGGI Í BRÚ - HREIMUR OG VIGNIR - EINAR EINSTAKI - STIGAMENN - LEIKSKÓLAKÓRINN OFL OFL.
- Kl.15:30 á sparkvellinum.
Eskjumenn bjóða uppá pylsur og gos.
Þrautir - sjómann og ýmsar keppnir.
Verðlaunaafhending fyrir kappróður og dorgveiðikeppni. - Kl.14:30-17:00 Kaffisala Björgunarsveitarinnar Hafrúnar í slysavarnarhúsinu Eskifirði.
- Kl.15:00-18:00 Árlegt sjómannadagskaffi björgunarsveitarinnar Ársólar í Þórðarbúð Reyðarfirði. Kl.16:30 verður kynning á starfi sveitarinnar undanfarið ár og þar verður farið sérstaklega yfir húsbyggingarferlið síðustu 2 ár.
- Kaffihúsið Eskifirði 1 árs
- Sjóminjasafn Austurlands opið alla helgina milli kl.13:00-17:00.

