Blogg
...endilega láttu heyra í þér
26.2.2009
Sumir dagar
Það er alveg makalaust hvernig sumir dagar fara með mann, eða öllu heldur hvernig maður lætur suma daga fara með sig. Er þetta ekki allt eftir því hvernig maður lítur á hlutina?
Ég vaknaði eitthvað illa upplagður. Í hádeginu pikkfesti ég bílinn rétt fyrir ofan húsið hjá mér, tókst svo fyrir rest að moka hann upp. Garðar var þá ekki í góðu skapi. Þegar bíllinn var orðin laus ætlaði ég að teygja mig eftir skóflunni en þá missteig ég mig hroðalega og hef ég verið bólgin síðan, ásamt því að vorkenna sjálfum mér og kvalin. Jæja, ég var þá komin heim, hafði farið í sturtu og komin í hreinan hvítan bol, en þá fékk Garðar blóðnasir upp úr þurru. Blóðið vall niður hvíta bolinn minn, Garðar varð fyrir vikið ennþá betri í skapinu. Svo í kvöld braut ég uppáhalds kaffibollann minn.....
.... sumir dagar sko!

18.2.2009
Tölvunarfræðin
Ég var að gera mér það ljóst í morgun að ég á ekki langt eftir í fyrstu gráðuna mína hjá Háskólanum í Reykjavík, lítil gráða, þó gráða samt. Í var nefnilega að fatta að ég verð sennilega kerfisfræðingur eftir komandi haustönn, þó ég haldi auðvitað áfram og alla leið í Bachelor gráðuna í tölvunafræði í kjölfarið.
Ég var að fara yfir framhaldsnám mitt með áfangastjóranum mínum og komst að því að eftir núverandi önn á ég einungis eftir einn kjarnaáfanga fyrir utan eitthvað smá val sem ég þarf að taka til að fylla kvótann. Ég og Erlingur, sem stundar námið samhliða mér, vorum að velta því fyrir okkur hvernig í ósköpunum við förum að því að tækla komandi haustönn en við gengum svo langt að hugsa mögulega fyrir lokaverkefni en það er gríðarstórt og viðamikið.
Ekki veit ég hvernig framhaldið verður en það fer senn að líða að því að ég verði eitthvað að gera í mínum málum og ákveða mig. Þannig er nefnilega mál með vexti að ef ég ætla alla leið í þessu námi kem ég til með að þurfa að flytja í bæinn þó ekki nema til skamms tíma vegna þess að BS-inn er ekki kenndur í fjarnámi; því ver og miður. Ég get þó ekki vælt því mig grunar sterklega að aðrir haft lent í því verra.

4.2.2009
Forritun
Elli Sprelli