Blogg

...endilega láttu heyra í þér

10.12.2008

Lífeyrissjóðir vs Stéttarfélög

Ég er að kvarta yfir þessari grein:
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/12/10/laun_stjornenda_helstu_lifeyrissjoda_munu_laekka/

VerkalýðurBurtséð frá þessum launakjörum sem eru auðvitað algjör fásina þá er eitt sem ég hef aldrei skilið varðandi lífeyrissjóði.  Ég hef alla mína ævi greitt í sameignarsjóð, allt frá byrjun séreignakerfisins hef ég greitt í það (allt frá 1997 að mig minnir).  Ég hef aldrei skilið hvers vegna stéttarfélög landsins eru með puttana í lífeyrissjóðunum.  Ég get skilið það frá fornu fari, þannig voru hlutirnir áður fyrr en nú er öldin önnur.  Mér finnst persónulega að það eigi að aðskilja lífeyrissjóði og stéttarfélög rétt eins og ríki og kirkju.  Hvað hefur stéttarfélag eiginlega að gera með það að vera með stjórnarmeðlimi í lífeyrissjóðum?  Ég veit það, það er allt fyrir völdin, menn vilja stjórna peningunum. 

ÉG tel að ef stéttarfélögin fara þaðan út erum við með færri vensl sem einfaldar hlutina, færri vensl þýða greiðari aðgang almennings að sjóðum án þess að vera með einhverja hagsmunaaðila sem skipta sér af.  Þegar öllu er á botninn hvolft eru sjóðirnir að vinna í okkar þágu, þ.e.a.s. þeirra sem greiða í sjóðinn.  Stéttarfélögin eru auðvitað að vinna fyrir okkur einnig en við greiðum aðskilið meðlimagjald þar og eiga þeir að vera að sinna kjaramálum, ekki skipta sér af því hvert ég greiði mitt iðgjald.  Ég vill geta greitt í þann sjóð sem ég kýs, ég vill ekki láta velja sjóðinn fyrir mig samkvæmt kjarasamningi.  

Ef stéttarfélög vilja skipta sér af einhverju þá eiga þeir að skipta sér af þessum fáránlegu launum stjórnarmanna, hvernig á almenningur að skilja svona?

Skrifað 10.12.2008 kl. 8:23 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.12.2008

Ég er óflokksbundinn

ÍslandEf það ætti að kjósa núna (þótt það séu 3 ár í næstu kosningar), hvaða flokk myndir þú kjósa?  Ég hef sett hér til hægri skoðanakönnun, bara svona til að sjá hverjir skoða síðuna mína  ;)

Sjálfur er ég óflokksbundinn, ég hreinlega gæti ekki gert upp hug minn að ég held.  Það virðist einhvern vegin alltaf vera þannig að ég get ekki gert upp hug minn fyrr en ég er komin í kjörklefann, þá ákveð ég mig yfirleitt.  Mér finnst þetta .að svo skrítið, af hverju get ég ekki ákveðið mig, af hverju er alltaf erfitt að kjósa "rétt"?  Ég virðist aldrei treysta neinum "flokk" þótt það sé fullt til af góðu fólki til að sjá um stjórnmálin.  Málið er að ég hef alltaf verið þessarar skoðunnar, jafnt í góðæri eða kreppu.

Svo eru stjórnmál svo skrítin ef maður virkilega pælir í þeim.  Við hlustum á fréttir allan liðlangan daginn og ákveðum hvar við stöndum eftir "mishlutlausum" fréttum.  Ef ég myndi spyrja Jón Jónsson á förnum vegi um hvað það þýddi ef við færum í Evrópusambandið þá yrði sennilega fátt um svör.  Viðkomandi gæti auðvitað verið mjög fróður um það en litlar eru samt líkurnar á því.  Hann myndi eflaust tjá sig um það að það væri svo gott að fá Evru, hann heldur það a.m.k. en er ekki viss, stjórnun á landinu fer fram í Brüssel.... ehhhh.... ég veit ekki meir.  Ég hef nefnilega gert það að gamni mínu og spurt fólk hvað þetta myndi þýða, þ.e.a.s. varðandi ESB og margir eru algjörlega tómir (að mínu mati).  Samt virðast menn geta gasprað um alla mögulega hluti þegar kemur að þessu, persónulega finnst mér ekki sem ég viti nógu mikið um ESB aðild, mér finnst vanta frekari upplýsingar.  Veit einhver hvar maður getur sótt "úrdrátt" úr því hvað ESB aðild þýði?

Skrifað 3.12.2008 kl. 7:53 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

Fara á upphafssíðu