Blogg

...endilega láttu heyra í þér

26.11.2008

Góður í kreppunni

Íslenskur gjaldmiðillÉg var að komast að því að "kreppan" hefur lítið áhrif á mig.  Mér finnst ég vera alveg rosalega heppinn.

Ég á engar skuldir né eignir.  Ég er í skóla og vinn um helgar, frúin er í skóla og vinnur 80% vinnu.  Með sparnaðaraðgerðum hef ég lækkað heimilisrekstur minn um rúman 100þús kall á mánuði.  Fyrir vikið er ég að reka heimilið á nauðsynjum og leyfi mér lítið (nema kannski annað slagið farið í sjoppuna eða eitthvað álíka).

Það sem ætti í raun að hafa bein áhrif á mig er hækkað vöruverð í Bónus, jú það hefur vissulega áhrif en eitt hefur þó vegið upp á móti því, alla vega að einhverju leyti.  Ríkisstjórnin breytti barnabótalögum þannig að þær greiðist út mánaðarlega og tóku út alla skerðingarþætti þannig að það þýðir slatti af þúsund-köllum í viðbót inn á heimilisreksturinn minn  :)

Með þessu get ég sagt að "kreppan" hefur lítil áhrif á mig.  Ég vona bara að ríkisstjórnin breyti meiru varðandi opinbera þættia svo það vegi enn betur á móti hækkandi vöruverði.

Ég vildi óska að fleiri væru í mínum sporum en eftir að hafa unnið í banka veit ég vel að svo er alls ekki.

Skrifað 26.11.2008 kl. 15:00 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

3 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

19.11.2008

Tölvunördabrandari í kreppunni

Maður í loftbelg sá að hann var að missa hæð. Hann tók eftir konu á jörðinni, lækkaði flugið aðeins meira og kallaði til hennar: "Afsakaðu, geturðu hjálpað mér?  Ég lofaði að hitta vin minn fyrir klukkutíma, en veit ekki hvar ég er."

Konan svaraði: "Þú ert í loftbelg sem svífur í 10 metra hæð, milli 40. og 41. Norðlægrar breiddargráðu og milli 59. og 60. Vestlægrar lengdargráðu."

"Þú hlýtur að vinna við tölvur", sagði loftbelgsmaðurinn.

"Það geri ég", svaraði konan. "Hvernig vissirðu það?"

"Nú", svaraði maðurinn, "allt sem þú sagðir mér er tæknilega rétt, en ég hef ekki hugmynd um hvaða gagn er af þeim upplýsingum, og reyndar er ég enn villtur. Satt að segja þá hefur ekki verið mikil hjálp frá þér. Ef eitthvað er þá hefurðu helst tafið ferð mína."

Konan svaraði: Þú hlýtur að vinna við stjórnun."

"Já", sagði maðurinn. "En hvernig vissir þú það?"

"Nú", sagði konan, "þú vissir hvorki hvar þú ert né hvert þú ert að fara. Eintómt loft hefur komið þér þangað upp sem þú ert. Þú gafst loforð sem þú hefur ekki hugmynd um hvernig á að efna og þú ætlast til þess að fólk fyrir neðan þig leysi þín vandamál. Reyndar ertu í sömu stöðu og þegar við hittumst, en nú er það einhvern veginn mín sök."


Skrifað 19.11.2008 kl. 10:00 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.11.2008

Íslendingabókin mín




Skrifað 17.11.2008 kl. 8:35 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

5 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

7.11.2008

Smáauglýsingar

Skoða nánar

4.11.2008

Batnandi mönnum er best að lifa

Skoða nánar

2.11.2008

Gamalt hugarfar

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu