Blogg

...endilega láttu heyra í þér

30.10.2008

Þetta er skrifað eins aftur á bak og áfram

·         Amma sá afa káfa af ákafa á Samma

·         Írakabakarí

·         Raksápupáskar

·         Líbanar kanna kranabíl

·         Arafat sarð rök skörð rastafara

Bara svona að gamni...

Skrifað 30.10.2008 kl. 8:42 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

24.10.2008

Að staldra við

PeningarMaður heyrir hverja fréttina af hverri annarri þar sem fjallað er um peninga og fjármálalífið.  Yfirleitt eru fréttamenn að kítast út í seðlabankastjóra, ríkisstjórnina eða "auðmennina".  Persónulega finnst mér þetta allt saman vera orðin gömul lumma, ótrúlegt en satt, mér finnst þetta gömul lumma meira að segja á meðan við erum að fara í gegn um lummuna.  Fyrir utan það er ég reiður út í breta, mjög reiður.  Þrátt fyrir að vera bæði leiður og pirraður á þessu hef ég ákveðið að taka þessu öllu með stóískri ró vegna þess að þetta hefur lítil áhrif á minn persónulega hag.  Það hefur lítil áhrif á minn persónulega hag vegna þess að ég á ekkert og skulda ekkert, ég er sennilega einn af fáum íslendingum sem á ekkert og skulda ekkert, sennilega best að vera svoleiðis í dag.  Ég mun auðvitað finna fyrir þessu verulega út á við, þ.e.a.s. í formi þess að vörur og þjónusta muni koma til með að hækka sem er auðvitað alls ekki nógu gott.  Annað dæmi um breytt ástand, íbúð sem var uppsett verð 18 milljónir í fyrra (ég bauð í hana 15) er núna sett á 10 milljónir.  Hvað segir þetta okkur um ástandið á fasteignamarkaðinum, hvað þá á Héraði?

Í morgun var ég að hlusta fréttir en þar var Gissur fréttamaður að tala um fárviðrið sem gekk yfir suður og vesturland í nótt.  Hann talaði um útköll 200 björgunarmanna og ótrúleg afrek þeirra, reyndar lítil meiðsl á fólki og skemmdir á eignum fyrir utan það hefðbundna þegar vont veður skellur á; trambolín á fleygiferð o.s.frv.  Það sem ég hef undanfarna daga verið að upplifa, þ.e.a.s. þegar ég heyri aðrar fréttir en peningafréttir, er sú staðreynd að Ísland er ennþá Ísland.  Við berjumst við óveður, sjómenn róa á fiskimiðin og lífið gengur sinn vanagang, ég meina Lagarfljótið er ennþá hérna fyrir utan gluggann hjá mér, engin breyting þar.  Ég fæ svona hlýjutilfinningu vegna þess að ég veit að Ísland er að breytast til hins betra og verður mannlegra eftir svona fárviðri af öðrum toga, peningafárviðrinu.  Gildin hér verða vonandi önnur, þ.e.a.s. ekki peningagildin í fyrirrúmi, það verður þannig alla vega hjá mér.

Skrifað 24.10.2008 kl. 7:22 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

1 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

21.10.2008

Vanafesta

Sundlaugin EgilsstöðumÞað er ótrúlega gaman að pæla í hvað mannskepnan er vanaföst, ég er að sjálfsögðu ekki undanskilin því.  Á hverjum morgni fer ég í rækt og sund, þar er yfirleitt sama fólkið sem mætir og hefur gert í mörg ár eins og ég.  Sjálfur er ég mjög vanafastur því hvað ég geri í ræktinni o.s.frv.  Það sem mér þótti fyndið í morgun var það að tveir eldri menn sem mæta á hverjum degi urðu einhvern veginn báðir fyrir "óþægindum". 

Í fyrra skiptið var það þannig að sundbrautin hans var upptekin og sundlaugin full, þ.e.a.s. það var verið að synda á öllum brautum en hann fann smá glufu hinu megin í lauginni til að synda.  Þegar ég kem svo sjálfur í laugina er "brautin hans" laus og fer þ.a.l. að synda í henni.  Persónulega þótti mér óeðlilegt að vera að synda á þessari braut á þessum tíma og ég tók reglulega eftir því að gamli gjóaði augum til mín.  Ég synti ekki nema helminginn af því sem ég syndi vanalega og skellti mér bara í pottinn enda þótti mér þetta frekar óþægilegt (svona er maður vanafastur sjálfur, og meðvirkur).

Þegar í pottinn er komið þá sé ég annan gamlingjann sitjandi hinu megin í pottinum vegna þess að ungur maður sat á plássinum hans í pottinum, það er ekki merkt honum en þetta er samt einhvern veginn alltaf hans staður til að sitja á.  Ég sá að honum leið illa að sitja þarna enda þótti mér mjög heimskulegt að sjá hann sitja þarna hægra megin í pottinum (vegna þess að ég er svo vanafastur sjálfur).  Svona erum við augljós að mörgu leyti.

p.s. þegar ég gúgglaði orðið "vanafesta" þá fann ég japanskan tölvuleik.....

Skrifað 21.10.2008 kl. 7:57 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

4 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

17.10.2008

Einn til að lífga upp á skammdegið

Skoða nánar

9.10.2008

Spilaborgin fest með kennaratyggjói

Skoða nánar

2.10.2008

Hvað ætli þeir séu að hugsa??

Skoða nánar

1.10.2008

Garðar með skegg

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu