Blogg

...endilega láttu heyra í þér

30.7.2008

Ég er úti-á-landi-kall

Mér finnst gott að búa á Héraðinu, mér hefur alltaf þótt þægilegt að búa í litlu samfélagi.  Ég hef búið í Reykjavík, erlendis og á fleiri stöðum en ræturnar hafa alltaf verið sterkar hérna á Héraði. 

Að búa úti á landi þýðir að stundum þarftu að bíta í tunguna þegar þú talar við þjónustufyrirtæki sem er staðsett í Reykjavík.  Ég segi þetta með fullri virðingu því ég veit vel að "úti-á-landi-liðið" veit heldur ekkert allt um staðarhætti í höfuðborginni.  Ég hringdi í Símann um daginn og var að skipuleggja að taka upp 3G netsamband fyrir mömmu og pabba, símadaman fór yfir allar staðreyndir 3G þjónustu ásamt verðhugmyndum.  Hún meira að segja benti mér á heimasíðu hjá Símanum þar sem sýnt var hversu víðtækt og gott 3G sambandið er á Héraði.  Ég var ánægður eftir símtalið.

Nokkrum dögum seinna var ég á spjalli við félaga minn sem er viðriðin Símanum og hann fór að hlæja þegar ég nefndi við hann 3G vegna þess að 3G er ekki komið á Egilsstaði.  Ég varð því pirraður, enn og aftur er einhver að svara í síma hjá þjónustufyrirtæki og hann/hún veit ekkert utan við Mosfellsbæinn.

Þetta er gott nöldur í bili...

Skrifað 30.7.2008 kl. 13:17 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

1 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

23.7.2008

Fatastærðir

BuxurnarStundum er maður djúpur í hugsun og stundum veltir maður heimskulegum hlutum fyrir sér.  Þegar kemur að fatastærðum þá er oft talað um X-small og X-large, er til eitthvað sem heitir X-medium..?

Ég veit að þessi stærð er auðvitað ekki til en ef ég ætti að gefa upp stærðina á sjálfum (sem nota bene er eins og jójó) þá myndi ég segja að ég væri X-medium.

Skrifað 23.7.2008 kl. 8:30 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

4 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

15.7.2008

Þetta eru kannski smámunir...

HandklæðiÞað vill til að ég láti litla hluti fari í taugarnar á mér annað slagið.  Í morgun þegar ég var búin að synda og fór í sturtuklefann tók ég eftir því að einhver hálf***i hafði þurrkað sér með handklæðinu mínu.  Ósjálfrátt þá fer maður að hugsa, ef ég þurrka mér með þessu handklæði mun ég þurrka andlit mitt með þeim parti af handklæðinu sem gaurinn þurrkaði á sér síðast?  Málið er að þetta nefnilega ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist, eru þið með einhver ráð?

Ég minnist þess að fyrir nokkrum árum síðan, þ.e.a.s. á þeim tíma þegar smíði á Kárahnjúkavirkjun var að hefjast en þá voru fluttir inn hundruð Kínverja til að smíða hana, einn daginn var ég að þurrka mér í sturtuklefanum þegar 5-6 Kínverjar "koma upp úr" og labba um sturtklefann, babbla eitthvað á kínversku og klóra sér í hausnum eins og þeir væru eitthvað ráðvilltir (sem er eiginlega mín helsta reynsla af þeim) en fyrir rest fóru þeir allir í handklæðarekkann og þurrkuðu sér með annarra manna handklæðum OG ÁN ÞESS AÐ FARA Í STURTU!

Ég fer ekki fram á mikið, ekki þurrka ykkur á mínu handklæði takk  :)

Skrifað 15.7.2008 kl. 7:56 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

2 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

3.7.2008

Kántríbær

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290923
Samtals gestir: 70464
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:29:00