Blogg

...endilega láttu heyra í þér

27.6.2008

Æskuminningar

Garðar 10 áraÞað er stundum fyndið að hugsa til baka, til æskuáranna.  Í morgun þegar ég var á leið í vinnuna flissaði ég yfir einu, þ.e.a.s. þann tíma þegar ég uppgötvaði kassettutækið og möguleikann á að taka upp með míkrafón.  Ég hlýt að hafa verið 9 eða 10 ára og var "kúk-og-piss" húmorinn sér í lagi yfirgæfandi.  Eitt dæmi sem ég man var þegar ég og Heimir Svanur skiptumst á að fara í herbergið mitt til að taka upp skilaboð fyrir hvorn annan.  Skilaboðin voru t.d. eitthvað á þessa leið: "Garðari finnst gott að borða hestaskít og rolluskít...... blandað..... tíhíhíhíhí!".  Ég gæfi mikla peninga fyrir að komast yfir eina af þessum kassettum sem við félagarnir gerðum.

Nota bene, ég er ekki enn laus við kúk-og-piss húmorinn.....

Skrifað 27.6.2008 kl. 7:29 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

2 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

25.6.2008

Evrópusambandið

EvraÉg er pirraður, ég hringdi til Hollands áðan til að fá út hvort einum (rándýrum) hörðum diski gæti verið skipt út vegna bilunnar en það var ekki hægt.  Hann sagði þar sem Ísland væri ekki í Evrópusambandinu gengi það ekki upp, þetta var næg ástæða fyrir mig til að vilja ganga í Evrópusamabndið.  Jújú, evran líka og allt það, en það er í mínum augum smáatriði...





Skrifað 25.6.2008 kl. 11:32 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.6.2008

Eignaréttur á dýrum

GæludýrÉg fylltist óhug í morgun þegar ég hlustaði á umræðuþátt í í útvarpi í morgun en þar var verið að tala um illa meðferð á dýrum.  Hvað er að fólki?  Þeir sögðu frá því að einhver hafði urðað hund lifandi, til allrar hamingju kom einhver dýrinu til hjálpar en ég næstum táraðist við að hlusta á þennan viðbjóð.

Það er reyndar staðreynd að til er fullt af fíflum, fólki sem heldur að dýr séu leikföng eða fær sér dýr á röngum forsendum.  Svo eru það viðbjóðar sem framkvæma þennan viðbjóð sem ég nefndi hér að ofan.  Þetta er eitthvað sem þarf að fjalla um, það þarf að skerpa á dýraverndunarlögum.  Það þarf að láta fólk svara til saka og jafnvel fangelsa það.  Fólk er fífl!

Skrifað 23.6.2008 kl. 8:21 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

2 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

13.6.2008

Borgin dafnar

Skoða nánar

6.6.2008

Kántríbær

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290923
Samtals gestir: 70464
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:29:00