Blogg

...endilega láttu heyra í þér

29.5.2008

Nýja vinnan

Ég undanfarnar tvær vikur verið að koma mér fyrir í nýju vinnunni minni og hlutirnir bráðum að verða að rútínu.  Fyrir þá sem ekki vita þá er ég byrjaður að vinna hjá Nýherja á Egilsstöðum, þar er deild sem kallast Umsjá og er í raun sá leppur Tölvusmiðjunnar (fyrrverandi) sem sér um tölvukerfi sveitafélaganna ásamt nokkrum öðrum aðilum.  Ég er aðallega að vinna fyrir Fljótsdalshérað sem er stærsti viðskiptavinurinn og fellst sú vinna í að halda netkerfum tölvum skólans gangandi.

Fram að þessu hefur mér fundist þessi vinna fín, ég er voðalega grænn í þessu öllu saman en mig grunar að ég verði fljótur að koma mér inn í þessa hluti.  Mér hefur einnig fundist sem dagarnir séu fljótir að líða, það er sennilega vegna þess að það hefur verið mikið að gera.  Ætli það sé ekki alltaf þannig þegar ég er að grúska með tölvur....?

Skrifað 29.5.2008 kl. 7:59 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

3 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

13.5.2008

..og þá er okkur ekkert að landbúnaði

Aces UpJæja!
Þá er komið að úrslitastundu, lokaprófið.  Við félagarnir í ÞEGS-hópnum erum að fara og verja lokaverkefni okkar í tölvunarfræðinni.  Við þurfum að standa fyrir framan prófessorinn okkar ásamt dæmatímakennurum, láta þá kryfja forritið niður í minnstu einingar.  Forritið sem við smíðuðum frá grunni er kapall og ákváðum við að hafa hann einfaldan til að eyða sem mestum tíma verkefnis í virkni kapalsins, sem er hægara sagt en gert.  Ég vona bara að þetta gangi vel því að mér gekk ekki svo vel í stærðfræðinni, ég hélt mér hefði gengið vel en einkunin mín sagði annað.  Við sjáum hvað setur.

Skrifað 13.5.2008 kl. 9:40 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

1 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

2.5.2008

Enn einn kúkalabbinn

Svona eru sumir morgnar.

Habba fór í vinnuna kl 07:30 og hafði skilið Egil eftir í sturtu, við leyfum honum stundum að vera í sturtu en það er eina leiðin til að halda honum í baðkarinu.  Þessi baðferð er ekki frásögufærandi en svo að 5 mínútum eftir að Habba fór kíkti ég inn og allt virtist í lagi.  Ég fór fram og gaf Einari að borða og var eitthvað að grúska en kíkti aftur inn öðrum 5 mínútum síðar.  Þegar ég kem inn þá hafði Egill troðið þvottapoka í niðurfallið og baðkarið var orðið næstum fullt, Egill situr í djúpinu og segir við mig "ég er kúkalabbi".  Fyrst fattaði ég ekkert en svo horfði ég betur um baðkarið og sá tvo brúna drjóla fljótandi, sá þriðji var búin að eyðast upp og lita vatnið brúnt.

Ég segi bara "gleðilegan föstudag".

Skrifað 2.5.2008 kl. 8:09 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

3 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290923
Samtals gestir: 70464
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:29:00