Blogg

...endilega láttu heyra í þér

30.4.2008

Kveð bankann

LandsbankiÍ dag er síðasti dagurinn minn í bankanum og er erfitt að hætta.  Það eru vissulega blendnar tilfinningar við það að hætta í vinnu sem maður er orðin góður að sinna, ég hef verið í bankanum síðan desember 2005 og hef náð mér í gríðarlega miklar þekkingu.  Þessi þekking verður náttúrulega mér til framdráttar í framtíðinni og mun ég búa að henni lengi, það er jákvætt.  Aftur á móti er oft erfitt að breyta til og taka stórar ákvarðanir, sérstaklega þegar maður er að reka fjölskyldu.  Ég væri í raun lítið að hugsa um þetta ef ég væri "single" vegna þess að þá þarf maður bara að hugsa um sjálfan sig.

Næsti vetur mun fara í nám og verð ég að segja að mig hlakkar mikið til.  Það erfiða er að lækka svona mikið í launum en annars er maður rosa happí.

Skrifað 30.4.2008 kl. 10:31 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

2 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

3.4.2008

Landsbyggðin er náttúrulega bara pakk!

Ég tók eftir mjög fyndnu atviki í dag, það er furðulegt hvernig viðhorf fólks er stundum.  Það var ómerkileg frétt á Vísi.is en þar var verið að tala um gömul líkamsræktartæki hjá Orkuveitunni sem átti að losa.  Ég ætla að líma fréttina í heild sinni og þar fyrir neðan ætla ég að líma sömu frétt eftir að henni var breytt skömmu síðar (sennilega eftir að margir hefðu orðið pirraðir við Vísi).

Fréttin eins og hún leit fyrst út:

Orkuveita Reykjavíkur auglýsir til sölu í Morgunblaðinu í dag fjöldann allan af líkamsræktartækjum. Um er að ræða gömul tæki sem fyritækið keypti notuð þegar nýja húsið var tekið í notkun. Tilvalið fyrir fólk á landsbyggðinni segir Sigrún A. Ámundadóttir hjá Orkuveitunni.

"Þegar við fluttum yfir í núverandi húsnæði var gert ráð fyrir líkamsræktaraðstöðu og voru keypt notuð tæki. Síðan var gerður þjónustusamningur við World Class sem sá um aðstöðuna. Fyrir nokkru ákvað World Class síðan að þessi tæki væru ekki boðleg fyrir sína kúnna þannig að þeir tóku þetta yfir í heild sinni og fylltu stöðina af sínum tækjum," segir Sigrún en í kjölfarið var gömlu tækjunum hent út.

Sigrún segir að tækin séu mörg hver komin til ára sinna og séu ekki boðleg líkamsræktarstöðvum í Reykjavík. "Þetta eru engu að síður tæki sem stöðvar úti á landi geta boðið sýnum viðskiptavinum, við gerum nefnilega minni kröfur úti á landi," segir Sigrún en öll tækin verða seld í einu lagi.

Því geta einstaklingar ekki nælt sér í einstök tæki en listinn er nokkuð langur. Þar má sjá kálfavél, fótakreppur, kviðvélar og tvo ljósabekki.
"Nei einstaklingar geta ekki nælt sér í ljósabekk hjá okkur. Það er bara annaðhvort allt eða ekkert."

Sigrún segist vonast til þess að aðilar úti á landi geti nælt sér í tækin og byrjað að æfa sem fyrst. "Það er það sem skiptir máli."

Svo leit hún út svona hálftíma síðar:

Orkuveita Reykjavíkur auglýsir til sölu í Morgunblaðinu í dag fjöldan allan af líkamsræktartækjum. Um er að ræða gömul tæki sem fyritækið keypti notuð þegar nýja húsið var tekið í notkun.

"Þegar við fluttum yfir í núverandi húsnæði var gert ráð fyrir líkamsræktaraðstöðu og voru keypt notuð tæki. Síðan var gerður þjónustusamningur við World Class sem sá um aðstöðuna. Fyrir nokkru tók World Class alfarið við rekstri stöðvarinnar og ákvað þá að setja sín líkamsræktartæki inn," segir Sigrún A. Ámundadóttir hjá Orkuveitu Reykjavíkur en í kjölfarið voru gömlu tækin auglýst.

Sigrún segir að tækin séu mörg hver komin til ára sinna. "Það hefur aðallega verið spurt um þessi af landsbyggðinni. Við landsbyggðarfólk gerum kannski minni kröfur en Reykvíkingar," segir Sigrún, sem býr á Akranesi, og áréttar að þetta sé eingöngu hennar skoðun.

Tækin verða seld í einum pakka og því geta einstaklingar ekki nælt sér í einstök tæki en listinn er nokkuð langur. Þar má sjá kálfavél, fótakreppur, kviðvélar og tvo ljósabekki.

"Nei einstaklingar geta ekki nælt sér í ljósabekk hjá okkur. Það er bara annaðhvort allt eða ekkert."

Skrifað 3.4.2008 kl. 15:09 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

3 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 166
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290949
Samtals gestir: 70467
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:50:15