hugmynd.biz
Hérna skrifa ég um allt og ekki neitt
Blogg
...endilega láttu heyra í þér
29.2.2008
NördaBorgaraLeikur
Jæja, þá er að blogga um nördalegustu afþreyjinguna sem ég er að stunda á netinu þessa dagana. Ég er að byggja borg á netinu og fylgjast með henni dafna. Félagi minn Sigmar (Simmi bóndi) benti mér á þessa síðu en hann er komin með farsæla borg. Það virkar þannig að maður smellir á slóð og það bætist t.d. við einn í "population" eða einn borgara. Það fer eftir því hvaða slóð maður smellir á til að bæta við hverju sinni, sjá hér:
- Kántríbær (með því að smella á þessa slóð bætist einn borgari við í borgina mína)
- Seinna meir yrði svo hægt að smella hér til að laga glæpatíðni en borgin mín er ekki nógu stór til að það sé orðin glæpatíðni, þetta er semsagt bara ennþá sveitaþorp.
- Svo yrði hægt að smella hér til að laga samgöngumál
- hérna til að laga eitthvað annað o.s.frv.....
Ég mun bæta við uppfærslum síðar meir.
19.2.2008
Bílar
Í gærkvöldi komu mamma og pabbi með flugi austur eftir að hafa verið í þorrablóti í Reykjavík. Þau hringdu í mig til að biðja mig að sækja sig sökum þess að bíllinn væri bilaður. Ekkert mál, ég sótti og skutlaði þeim heim.Kómíska hliðin á þessu var sú að alla leiðina í Lönguhlíð var verið að velta fyrir sér bilunina á bílnum, var það tímareimin, heddið er ónýtt, þetta kom á versta tíma, af hverju núna, o.s.frv. Þetta voru semsagt eintóm leiðindi og stress. Pabbi sótti mig svo seinna um kvöldið þar sem við drógum jeppann inn í Frumherja þar sem pabbi opnaðu húddið. Hann bankaði, skrúfaði og reif einhverja snúrur úr sambandi en aldrei fann hann neitt að bílnum. Þvínæst prófaði pabbi að ræsa bílinn og viti menn, HANN LIFIR!!! Það sem mér fannst kómiskt var í raun bara að "allt er gott sem endar vel".
Bílar fara í taugarnar á mér, hafa alltaf gert. Ég skil grunnhugmyndina af bílvél, þ.e.a.s. bensín og rafmagn myndar sprengikraft sem knýr vélina áfram, semsagt mjög einföld mynd af bílvél. Að öðru leyti skil ég lítið í bílum, kannski nenni ég ekki að skilja þá. Ég er nýbúin að selja Landcruiser-inn minn en ætla að kaupa mér gamlan bíl, er í sparnaðarátaki. Þegar ég skoða bíla þá er ég voðalega vanafastur einfaldlega vegna þess að ég veit ekki betur, vel einhvern veginn alltaf Toyota eða Subaru. Fyrir pabba er ég örugglega álíka og pabbi er fyrir mér gagnvart tölvum, þ.e.a.s. við skiljum grunnhugmyndina en erum ekkert að velta því fyrir okkur vegna þess að "hluturinn virkar".
Lífið er fyndið eftir því hvernig maður lítur á það....
Eldra efni
Flettingar í dag: 166
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290949
Samtals gestir: 70467
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:50:15

