hugmynd.biz
Hérna skrifa ég um allt og ekki neitt
Blogg
...endilega láttu heyra í þér
19.12.2007
Aðrir dagar
Ég vill byrja á að óska pabba mínum til hamingju með daginn, úfff það styttist í hálfu öldina...
Með tilliti til fyrri bloggfærslu, þ.e.a.s. fyrradagsfærslan þá langar mér að lýsa morgninum í dag líka. Aftur hafði ég snúzað frameftir, klukkan var sennilega eitthvað yfir 08:00 (08:20 eða eitthvað) og ég staulast fram. Habba hafði nefnilega tekið Einar með sér fyrr um morguninn og ég ásamt yngri syninum vorum eftir. Egill var ennþá sofandi svo ég ákvað að læðast fram í sturtu meðan hann svæfi, auðvitað þurfti kauði að kalla á mig rétt áður en ég ætla í sturtu. Þegar ég kem inn í barnaherbergi bíður mín "surprise special"!
Ég opna hurðina og sonur minn stendur í rimlarúminu og segir "kúka". Hann stendur þarna með kúk í annarri hendinni, búin að smyrja kúk á samfelluna og lakið er líka svolítið skítugt. Til að setja þetta í samhengi þá er hægt að ímynda sér hnetusmjör sem hefur verið smurt yfir bringuna. Þessi morgun var því ekki eins fljótlega afgreiddur eins og ég vildi, fór með drenginn inn í sturtu og spúlaði kauða hátt og lágt.
Ég sagði vinnufélögum mínum stuttu útgáfuna af þessari morgunvísu og þá sagði Haukur gjaldkeri eitt sniðugt. Ætli Egill byrji ekki eins og Kjarval endaði, þ.e.a.s. þegar Kjarval var orðin "ruglaður" voru allir litir og penslar teknir af honum, fyrir vikið málaði hann bara úr eigin saur.....

17.12.2007
Sumir dagar
Sumir dagar eru einhvern vegin svo fyndnir, þetta fer yfirleitt eftir því hvernig maður vaknar á morgnanna. Í morgun má eiginlega segja að ég hafi sofið yfir mig, ég vaknaði semsagt þegar Einar kom og spurði eftir mömmu sinni (hún var þá farin í vinnuna). Einhvern vegin hafði mér tekist að snúza fram eftir og klukkan orðin rúmlega átta, ég fer nefnilega í vinnuna í kring um níu leytið. Það var þó engin skaði skeður því ég gat drifið mig af stað en þegar maður þarf að brauðfæða og klæða 2 börn tekur allt sinn tíma.
Ég kveikti á imbanum og skellti morgunkorni í skál fyrir strákana, var að kaupa mér tíma til að komast í sturtu. Þegar sturtuferðin er hálfnuð kemur yngri sonur minn inn og heimtar að fara í bað líka, til að að láta hann hafa eitthvað fyrir stafni meðan ég rakaði mig og kæmi Einari í föt ákvað ég að gefa það eftir og skellti drengnum undir bununa. Ég kláraði að klæða mig í vinnufötin, takið eftir að vinnufötin mín eru jakkaföt og bindi, vippaði mér þaðanaf í að koma eldri drengnum að verki og klæða sig í fötin. Heyri svo öskur inni á baði, þá hafði yngri strákurinn kúkað í baðið en þar flutu 3 drelar og tveir kafbátar höfðu eiginlega náð að leysast upp og gert vatnið ljósbrunt. Fyrir vikið hófust þar hreinsunarstörf, klæddi yngri strákinn og skipaði fyrir að nú skildum við fara í útifötin.
Klukkan var núna orðin níu og ég farin að ókyrrast. Dreif strákana út en fattaði svo að ég átti eftir að borða morgunmat, samdi við strákana að bíða í garðinum meðan pabbi færi inn og fengi sér mjólkurglas og eitthvað lítið í gogginn. Vegna hlákunnar var garðurinn orðin að einu drullumalli, sérstaklega fyrir framan innganginn á húsinu, strákunum tókst auðvitað að stíga beint í drulluna og drulla sig út. Nú voru menn festir í bílstólana og bíll ræstur. Ég hafði ekki tekið eftir því en ruslakarlarnir voru greinilega nýkomnir og búnir að draga fram ruslatunnuna (beina fyrir aftan bílinn minn). Vegna þess að bíllinn minn er hár og stór sá ég ekki tunnuna í baksýnisspegli og keyrði á hana!
Ja hérna, sumir dagar. Samt tókst mér að horfa á björtu hliðarnar á þessu öllu saman og mætti bara seint í vinnuna, isss það skiptir engu máli, svona er bara lífið.

11.12.2007
Gore vs Bush
(Frétt af mbl.is)Maður hefur annað slagið fylgst með þessum ágæta manni Gore, hann hefur sérstaklega látið mikið af sér kræla í loftslagsmálum, sem er auðvitað hið besta mál. Nú voru honum afhent friðarverðlaun Nóbels og má örugglega segja sem svo að hann hafi átt það skilið, hann hefur alla vega verið mjög áberandi lengi vel, meira að segja fengið kvikmyndaverðlaun fyrir bestu heimildarmyndina. Hann eyðir miklum fjármunum í verndun pláneturnar og hefur gríðarleg áhrif í heim ríkra og þaðanaf dælast fjármunir í þessi málefni. Allt gott og blessað.
Það sem ég pæli oftast í þegar ég sé nafnið Gore eru kosningarnar í Bandaríkjunum árið 2000 þegar Bush hafði betur í slagnum, hugsið ykkur að það hafi aðeins munað 270 atkvæðum. Ég man vel eftir þessum degi því á þeim tíma hafði ég ávallt vonað að Gore næði kjöri. Það er góð grein hérna á Wikipedia um þessar kosningar árið 2000. Nú kasta ég spurningu fram, hvernig væri hagað í loftslagsmálum á heimsvísu ef Gore hefði orðið forseti Bandaríkjanna? Væri Kyoto ekki enn í fullu gildi?
Fyrir mitt leyti vona ég innilega að demókratar nái kjöri næsta vor, mér er nánast sama hvaða demókrati það er.
Eldra efni
Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290923
Samtals gestir: 70464
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:29:00