Blogg

...endilega láttu heyra í þér

27.11.2007

Piracy is good!

Þessi fyrirlestur er ágætur, sérstaklega gaman fyrir þá sem hafa fylgst með þessum torrent málum.

Nota bene, eftir að þeir lokuðu Istorrent hafa sprottið upp 3 nýjar síður.

Hérna er fyrirlseturinn
http://video.google.com/videoplay?docid=-1720068211869162779

Skrifað 27.11.2007 kl. 8:49 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

1 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

25.11.2007

Og þetta á að gera....?

Það verður forvitnilegt að fylgjast með framvindu slíkra mála í Frakklandi(sjá þennan link á mbl).  Frakkar eru oft mjög sérstakir þegar kemur að alls konar löggjöfum, þeir ganga yfirleitt hvað harðast fram í mörgu.  Við getum borið það saman við hryðjuverkarlöggjögina þar í landi en þeir eru sú evrópuþjóð sem gengur hvað harðast gegn slíkum ógnum.  Við heyrum vanalega ekki miklar frásagnir um hryðjuverkarógn í Frakklandi, þeir einfaldlega leyfa þeirri ógn ekki að viðgangast.  Þeir geta t.d. haldið einstaklingi endalaust án dóms og laga ef grunur leikur á að hann sé hryðjuverkarmaður, það hefur verið svoleiðis löngu á undan hinun svokallaða "stríði gegn hryðjuverkum", löngu á undan 11.september 2001, þeir einfaldlega eru með gríðarlega stranga löggjöf hvað þetta varðar.

Hvað varðar þessa löggjöf, þeir munu sjálfsagt hræða einhverja frá þessum athæfum en ég er ávallt þeirrar skoðunnar að netinu verði aldrei stírt.  Kínverjar eru stöðugt að rembast, af hverju ætti Frökkum að ganga eitthvað betur?  Mér er spurn, hvernig tekur maður netið af einhverjum?  Er þetta ekki eins vitlaust og að segja við manneskju, ég ætla að taka af þér ástina?  Mér finnst svona löggjöf vera bjánaleg. 

Það sama á við um þetta blessaða istorrent-mál hérna á Fróni, ég bíð enn spenntur eftir að vita hver ákæruliðurinn verður gegn þessum Svavari (eða hvað hann nú heitir).  Mér finnst menn ansi uppátækjasamir ef þeim tekst að kæran hann fyrir að eiga heimasíðu með linkum.  Það er hægt að fara ýmsar leiðir til að "vinna með" þessai tækni og að leggja boð og bönn er alls ekki eitt þeirra.  Horfum á tonlist.is og rokk.is en það eru heimasíður sem gera það gott, eða ég held alla vega.  Lítum upp til hljómsveitarinnar Radiohead, þeir "selja sig sjálfir".  Látum gott heita.

Skrifað 25.11.2007 kl. 9:46 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

21.11.2007

Torrent vs Smáís

uTorrentMér finnst vera einhver skítalykt af þessu máli (sjá hérna), ég kann ekki að útskýra lagalegan grundvöll á svona málum en það væri gaman að vita hver ákæruliðurinn sé.  Fyrir hvað gætu þeir mögulega kært hann?

Ég er með eina lausn á þessu "vandamáli", mér finnst að Smáís eigi bara að hanna lista um höfundaréttavarið efni (væntanlega af innlendu efni) og krefja torrent.is að linka á þessa síðu og þ.a.l. geta þeir sem sækja efni með hjálp torrent ekki sagst hafa vitað efnið "væri ekki varið höfundarétti".  Ef maður hugsar svona dæmi til enda þá getur maður ómögulega vitað hvað sé höfundaréttavarið og hvað ekki.

Með vísan í vefinn netfrelsi.is þá segi ég bara, þetta mun hafa nákvæmlega engin áhrif á niðurhal á Íslandi og ég held einfaldlega að hagsmunaaðilar séu að berja hausi við stein (og án árangurs).




Skrifað 21.11.2007 kl. 8:45 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

14.11.2007

Uppfærsla frá Kærastu 7.0 til Eiginkona 1.0

Skoða nánar

8.11.2007

Launamál

Skoða nánar

1.11.2007

Forritun

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 166
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290949
Samtals gestir: 70467
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:50:15