hugmynd.biz
Hérna skrifa ég um allt og ekki neitt
Blogg
...endilega láttu heyra í þér
19.10.2007
Hrun bæjarstofna
Mér finnst sorglegt að horfa upp á æskuslóðir mínar verða að engu, þ.e.a.s. Eskifjörður fer sennilega í eyði bráðum. Ég kannski hljóma full svartsýnn en þetta er samt sem áður sú tilfinning sem ég hef gagnvart þessu ágæta bæjarfélagi. Það lifir ekki mikið eftir af atvinnustarfsemi né þjónustu í plássinu, gamla Pöntunarfélagið er enn með dauðakippina en lokar sennilega fljótlega. Þorskkvótinn og niðurskurðurinn þar kom auðvitað á verast tíma því nú er verið að loka Frystihúsinu, mér er spurn, hvað er eiginlega að gerast?? Er ekki verið að byggja álver?? Er ekki uppgangur??
Er það svo að bæjarfélagið Fjarðabyggð sjái sér ekki fært að byggja þetta fallega sveitafélag og beina allri umferð annað hvort á Reyðarfjörð eða Neskaupsstað. Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að fasteignasalar bæði meðvitað og ómeðvitað selji ekki fasteignir þar sökum þess að fasteignir "séu ekki seljanlegar". Helstu rökin sem ég hef heyrt er það að Hólmatindurinn sé svo stór.....
Ég er algjörlega ofurseldur því að það er ekki vottur af samheldni í Fjarðabyggð. Ég vinn mikið á Reyðarfirði í minni vinnu, einnig á Fáskrúðsfirði og ég lendi oft í spjalli við bæjarbúa um samfélagsmálin. Ríkjandi viðhorf í fólki er það að það sé alltaf myrkur á Eskifirði og ekki búandi þar, bæjarstæðið þröngt og ömurlegt. Samt hefur kaupsstaðnum tekist að tóra með kaupsstaðaréttindi í rúm 200 ár, geri aðrir betur. Af hverju er þetta viðhorf svona ríkjandi? Ég ólst upp "inni í dal" eins og það er nefnt og ég var aldrei var við þetta margumtalaða myrkur; sennilega vegna þess að ég var vanur þessu eða eitthvað álíka.
Þetta ömurlega viðhorf er eitthvað sem ég verð mikið var við hérna á Héraðinu gagnvart Fellabænum. Ég bý þar og er að leita mér að fasteign en úrvalið fáránlegt, þ.e.a.s. drög að nýju skipulagi hefur legið á borðinu í langan tíma en ekkert gerist. Það er byggt og selt á Egilsstöðum en fyrir Fellbæjinga er ekkert gert. Ég er pirraður...

4.10.2007
Ég nenni því ekki...
Sagnorðið "að nenna", það er slungið orð. Einungis í íslenskri tungu hefur okkur tekist að búa til orð sem innifelur heilar setningar í öðrum tungumálum. Við nennum svo lítið að tala að okkur tókst að skella heilli setningu í eitt orð, við nennum þessu ekki.
Ætli það sé hægt að nenna ekki að nenna...?

Eldra efni
Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290923
Samtals gestir: 70464
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:29:00