hugmynd.biz
Blogg
26.9.2007
Þessi er fjandi góður
Hjón nokkur fóru á fæðindardeild til að fæða barn sitt. Þegar þau komu þangað sagði læknirinn að hann hefði fundið upp tæki sem færði hluta af fæðingjarverkjum frá móður til föður. Hann spurði hvort þau væru tilbúin að prufa tækið. Þau voru bæði spennt fyrir því. Læknirinn byrjaði á 10% þar sem þar væri líklega meiri verkur en eiginmaðurinn hefði áður upplifað. Eftir því sem lengra leið á fæðinguna bar maðurinn sig vel og sagði lækninum að hækka í tækinu. Læknirinn hækkaði í 20% og síðan í 50%. Enn var eiginmaðurinn stálsleginn og bað lækninn að færa alla verkina yfir á sig.
Fæðingin gekk mjög vel og móðirin fann ekkert fyrir öllu saman. Eiginmaðurinn var stálsleginn.
Þegar þau komu heim lá bréfberinn dauður á tröppunum fyrir framan húsið.
25.9.2007
Tímarnir breytast og mennirnir með
Skyldi maður vera orðinn gamall..... ég las þetta alla vega og brosti :-)
Góða skemmtun.
Á þessu herrans ári 2007 eru löglega taldir sem fullorðnir einstaklingar á Íslandi allir þeir sem fæddust árið 1989.
- Þegar þau fæddust kunnir þú að skrifa, lesa, leggja saman, draga frá og hluta af margföldunartöflunni.
- Þau muna sama og ekkert eftir Reagan-tímabilinu og fréttu aldrei af því þegar reynt var að drepa hann.
- Þau muna heldur ekki eftir leiðtogafundinum sem haldinn var í Höfða og vita fátt um Gorbatsjoff.
- Þau voru ekki kynþroska þegar Persaflóastríðið hófst.
- Fyrir þeim hefur sami páfinn verið í Vatikaninu síðan þau fæddust.
- Þau sungu aldrei "We are the world, we are the children".
- Þau voru 5 ára þegar Sovétríkin féllu.
- Þau muna fátt eftir kalda stríðinu og síður eftir Austur- og Vestur-Þýskalandi, þó svo að þau hafi heyrt afþeim í sögutímum.
- Þau eru of ung til þess að muna eftir því þegar Challenger-geimflaugin sprakk og munu sennilega aldrei vita hvað Pepsi-áskorunin var.
- Fyrir þeim hefur AIDS verið til alla ævi.
- Þau léku sér aldrei með ATARI-tölvuleiki, geisladiskurinn kom á markaðinn 2 árum áður en þau fæddust, þau hafa aldrei átt plötuspilara og hafa sennilega aldrei leikið sér með Pac-man.
- Þegar talað er um BETA-vídeóspólur hafa þau ekki hugmynd.
- Star Wars og Súperman finnast þeim frekar slappar myndir og tæknibrellurnar ömurlegar.
- Mörg þeirra hafa ekki hugmynd um að einu sinni var ekkert til nema Ríkissjónvarpið sem fór í frí á fimmtudögum og í júlí.
- Þau muna heldur ekki eftir því þegar Rás 2 var eina rásin í útvarpinu fyrir utan Rás 1, og sú eina sem spilaði annað en klassíska tónlist.
- Þau hafa áreiðanlega aldrei hlustað á útvarpssögur eða Lög unga fólksins eða Óskalög sjúklinga og sjómanna og Bessi Bjarnason hefur aldrei verið ungur.
- Fá hafa séð svart-hvítt sjónvarp og þeim finnst fáránlegt að þurfa að hækka og lækka og skipta um stöð án þess að hafa fjarstýringu.
- Þau fæddust ári eftir að Sony hóf sölu á vasadiskóum og fyrir þeim hafa hjólaskautar alltaf verið línuskautar.
- Þeim hefur alltaf þótt farsímar og PC tölvur vera óskaplega eðlilegir hlutir, ekkert nýtt.
- Þau hafa ólíklega séð Húsið á sléttunni, Þórð húsvörð í Stundinni okkar og Einu sinni var.-Þau hugsa aldrei um "Jaws" þegar þau fara í sjóinn, Michael Jackson hefur alltaf verið hvítur...og hvernig er mögulegt að John Travolta hafi einhverntíman dansað, svona feitur maður! Olivia Newton-John?
HVER??!! - Þeim finnst lítið fyndið að vitna í Með allt á hreinu, Nýtt líf og Stellu í orlofi.
- Þau muna ekki hverjir Þorgeir Ástvaldsson, Geiri Sæm og Herbert Guðmundsson eru.
- Nafnið Hemmi Gunn segir heldur ekki margt.
- Madonna hefur alltaf verið fræg og nöfn eins og Duran Duran, Wham, Culture Club, Thompson Twins, Tears for Fears, Rickshaw, Limahl, Terence Trent D´Arby, Talking heads og Modern Talking hljóma ekki kunnuglega.
- Þau muna ekki eftir BMX-hjóla tímabilinu og break-dance tímabilinu.
- Þau hafa ekki hugmynd um hvað Millet-úlpur og Don Cano voru merkileg fyrirbæri.
- Þau vita sennilega ekki að strætó var einusinni grænn og að tíkallar og fimmtíukallar voru seðlar.
- Þau hafa aldrei keypt fimmaurakúlur og muna ekkert eftir því að hafa notað aura.
- Þau vita ekki hvað Karnabær var og hafa aldrei séð Tommaborgara sem merkilegt fyrirbæri.
- Þau hafa alltaf getað pantað mat heim og alltaf verið vön tilveru kreditkorta.
- Munið kæru vinir að þetta fólk er unga fólkið í dag.
Merki þess að þú ert farin/n að eldast:
- Þegar þú lest þennan texta og brosir.; )
- Þegar þú stundar íþróttir og lætur alla vita með miklu stolti.
- Þegar þú geymir bækur, vatnsglas og vaselín á náttborðinu.
- Þegar fyllerí og kelerí eru ekki lengur umræðuefni.
- Þegar börn tala við þig eins og þú talaðir við "fullorðna fólkið" fyrir stuttu.
- Þegar "fullorðna fólkið" talar við þig eins og jafnaldra.
- Þegar þú þarft meira hálfan dag til þess að jafna þig eftir vökunótt.
- Þegar vinir þínir eru allir giftir.
- Þegar litla frændfólkið þitt er farið að sníkja sígarettur eða áfengi.
- Þegar litla frændfólkið þitt veit meira um tölvur en þú.
- Þegar þú getur farið á ströndina og eytt heilum degi án þess að fara í sjóinn.
- Þegar þú stundar líkamsrækt í fötum sem fela líkamann í stað þess að sýna hann.
- Þegar þú vilt frekar hitta vini þína í stað þess að kjafta klukkutímum saman í símann.
- Þegar þú veist hvað þú vilt.
- Þegar þér líst betur á afslöppunarkvöld en partýkvöld.
- Þegar þú horfir á fréttir og Kastljós og hefur virkilega áhuga.
- Þegar þú lest Moggann í heilu lagi og hefur skoðun á næstum öllu.
- Þegar þú ert aldrei spurð/ur um skilríki.
- Þegar þú og vinir þínir eruð farin að finna grá hár.
- Þegar þú ákveður að senda þetta bréf til vina sem hafa áreiðanlega gaman að því.
11.9.2007
Hleranir og hryðjuverk
Með vísan í pælingarnar mínar hérna um daginn (sjá neðan).Það var í fréttum í dag að háttsettur leyniþjónustumaður í Bandaríkjunum hélt því fram að hleranir hafi komið í veg fyrir hryðjuverkin í Þýskalandi og Danmörku. Tvísýnt hefur verið að hleranir séu ólöglegar nema með dómsúrskurði (eins og hefur verið hingað til). Ég man vel eftir umræðu Björns Bjarnasonar um að leyfa lögreglunni á Íslandi að hafa víðtækari heimildir til hlerana án úrskurðar í ljósi hryðjuverkarógnar. Mikil umræða spratt upp í kjölfar þess, lögregluríkið Ísland og allt það.
Ef hryðjuverkin í Danmörku og Þýskalandi voru hindruð vegna hlerana þá ber að hugsa málið til enda. Eigum við að leyfa þetta á Íslandi? Ef ekki, af hverju ekki? Svo virðist sem þetta hafi náð árangri erlendis. Ég er ekki að segja að ég vilji endilega gefa lögreglunni þessa aukaheimild, ég er bara að pæla í þessu til enda. Eins ólíklega og það vill til þá efa ég að Ísland verði skotmark hryðjuverkar, ég stórlega efa það.
Ég veit að margir útlendingar sjá lítin mun á Íslendingum og öðrum norður evrópuþjóðum, hvers vegna ekki hryðjuverkamenn líka?
Eldra efni

