hugmynd.biz
Blogg
23.8.2007
Þegar nýútskrifaður lögreglumaður hefur störf
Með fyrirvara um að ég þekki málið ekki frekar en aðrir sem fylgjast með fréttatímum.Ég fór að hugsa um starfsaðferðir lögreglu þegar kemur að sýnatöku blóðs og þvags vegna gruns um ölvun eða eitthvað álíka, þá gegn vilja fólksins. Samkvæmt fréttinni sem ég las á mbl.is þá eru engar starfsreglur í handbók lögreglunnar um hvernig því skuli háttað ef einstaklingur vill ekki gefa sýni til sönnunargagna. Samkvæmt þessu undangengnu máli í mars síðastliðin á Selfossi þegar 3 fílefldir karlmenn (lögreglumenn) héldu konu nauðugri og tóku þvagsýni með röri upp þvagrásina, með lækni og hjúkrunarkonu að vísu viðstödd; málið snýst um hvort nauðgun hafi verið að ræða eður ei.
Mitt álit á málinu, með fyrirvara um að ég veit bara það sem hver annar veit sem les fréttir, að þetta hafi ekki verið kynferðisleg nauðgun þó klárlega um einhvers konar nauðgun hafi verið að ræða. Af fréttum að dæma þá hefur konan verið hjá geðlækni síðan atvikið átti sér stað og liðið fyrir atvikið með ömurlegum afleiðingum, málið er að þetta hlýtur að hafa verið hræðileg upplifun fyrir aumingja konuna og að mínu mati hefði ekki átt að vera framkvæmt svona (gefandi okkur að þessi frásögn sé 100% rétt).
Aftur að starfsaðferðum almennt. Gefum okkur fjarstæðukennt dæmi, segjum að ég byrji að vinna á gámakrana hjá Eimskip en engin gat sýnt mér hvernig ég ætti að stjórna tækinu, er þá nokkuð skrítið að ég skuli klessa á gámana og skemma kranann? Ef lögreglumenn hafa ekki vinnureglur um hvernig þeir eigi að taka blóð- og þvagsýni gegn vilja fólks hvernig eiga þeir þá að framkvæma verk sín? Ég er ekki að réttlæta verk þeirra á Selfossi, ég hefði farið þá leið að fara með manneskjuna á næsta spítala og láta fagmenn um verkið, ekki lögreglumenn sem hafa enga reynslu af þvagsýnatöku. Það eru viss mannréttindi sem þurfa að vera í heiðri og þeim var að mínu mati ekki framfylgt þarna.
Svo er eitt annað sem ekki fylgir sögunni. Konan var víst búin að gefa blóð en neitaði að gefa þvagsýni, hvers vegna? Ég á ekki von á því að lögreglan hefði krafið hana að míga í dallinn fyrir framan þau, ég býst við að hún hefði örugglega fengið að kasta þvaginu afsíðis í salersnisaðstöðu lögreglustöðvarinnar. Hvaða ástæður liggja að baki þess sem gerðist þetta umrætt kvöld er að mörgu leyti á huldu höfði, það er frásögn lögreglu og frásögn konunnar. Niðurlag er því í tvennu lagi:
- Lögreglan þarf að hreinskrifa vinnuaðferðir og ef allt er satt í þessum fréttum að ávíta ónafngreindu lögreglumennina. Það þurfa semsagt að liggja fyrir vinnureglur svo blessaðir lögregluþjónar landsins geti synnt sínum skyldum, annars fylla þeir í eyðurnar.
- Var konan drukkin? Af hverju gaf hún blóð en ekki þvag? Hafði hún verið ofbeldisfull við lögreglumennina eða blótað þeim? Var konan einungis fórnarlamb aðstæðna?
22.8.2007
Þar sem fólki finnst skemmtilegast að versla...!
Velkomin í Hagkaup:
Hávær, ljót, ókurteis kona labbar inn í Hagkaup með börnin sín tvö, galandi blótsyrðum að starfsfólki um leið og hún gengur inn.
Starfsmaður Hagkaupa segir glaðlega: "Góðan daginn og vertu hjartanlega velkomin í Hagkaup":
"Falleg börn sem þú átt, eru þau tvíburar?"
Ljóta konan hættir fúkyrðunum rétt til að að koma að, "andskotinn, þau eru það ekki!
Annað er 9 ára og hitt 7 ára, hvað í fjandanum fær þig til að halda að þau séu tvíburar? Ertu blindur eða einfaldlega nautheimskur?"
"Ég er hvorugt frú mín góð", svaraði starfsmaðurinn. "Ég bara trúði ekki að þú gætir hafa fengið á broddinn tvisvar sinnum, eigðu góðan dag og takk fyrir að versla í Hagkaup".
Þar sem fólki finnst skemmtilegast að versla...!
20.8.2007
Smá blogg...
Ég blogga voðalega lítið. Yfirleitt ef ég hef viljað kom einhverju frá mér þá er það yfirleitt ekki um neitt frá mér persónulega, yfirleitt bara nöldur eða þankagangur um stjórnmál. Þess á milli þegar ég hef ekkert að segja þá kópí peista ég bara einhverja brandara sem mér finnst fyndnir, ég verð að setja eitthvað inn með reglulegu millibili, annars lætur fólk mig vita hversu lélegur bloggari ég sé. Persónulega hefur mér aldrei fundist sem ég sé einhver bloggari, nema kannski akkúrat þessa sekúnduna. Mér finnst gott að hafa svona síðu til að koma skoðunum mínum á framfæri, þá oft um svona hitamál eða pólitíks mál, eiginlega vegna þess að hérna inni get ég sagt það sem mér finnst án þess að menn röfli yfir því, alla vega ekki mikið.
Blogg dagsins hljómar því svo: Ég vaknaði, fór í ræktina og svo... og svo.... neinei. Ég nenni þessu ekki! Ég ætla frekar að blogga um undanfarnar vikur og hvert stefnir í þeim næstu. Við fjölskyldan höfum semsagt eytt sumrinu heima í Fellabænum eða á Brú Jökuldal til skiptis, t.d. um daginn vorum við að hjálpa til við störfin þar á bæ tvær helgar í röð. Bæði í heyskap og smá vinnu við að klæða þak, mjög gaman allt saman. Það er alltaf gott að vera í sveitinni.
Síðustu helgi byrjaði ég í skólanum, er að stunda nám við kerfisfræði í HR, hóf semsagt staðbundna lotu núna um helgina; mun svo þ.a.l. vera við fjarnám, hef þessa fínu aðstöðu í Þekkingarneti Austurlands. Um helgina vildi svo heppilega til að Salo og Himmi voru að halda nafnaveislu fyrir litlu frænku, eða Hrafnhildi eins og hún heitir í dag. Ég gat verið við þá veislu og var þetta voða sæt veisla, góður matur sem var mér til mikillar hamingju.
Bráðum kemur að afmæli Einars, við ætlum að hafa einhverja flotta veislu handa stubbinum enda er hann að verða fimm ára. Í dag er það Bósi Ljósár, Teen Titans og Transformers ( ég veit samt ekki hvort ég leyfi barninu að horfa á þessa nýju mynd). Við keyptum eitthvað ToyStory dót sem á víst að slá í gegn, ég vona það alla vega.
Jæja! Nóg blogg í bili, þangað til eftir 6 mánuði (sem er líklegast sem ég "blogga" næst).
Eldra efni

