Blogg

...endilega láttu heyra í þér

30.7.2007

Er hann raunsær?

Gordon Brown heldur til Bandaríkjanna á fund Bush forsetaÉg hef gaman af vangaveltum þegar kemur að alheimsmálum, einkum vegna þess að ég vill eftir bestu vitund sjá hlutina út með raunsæji.  Hver vill svosem ekki gera það?

Persónulega er ég algjörlega mótfallinn múgsefjum og æsingi sem oft virðist myndast þegar rætt er um hitamál í heimsmálum, aðallega þegar kemur að fréttamennsku.  Oft fara sumir fréttamenn í taugarnar á mér þegar þeir fjalla um ýmis málefni og vilja í raun bara ræða "eina hlið" málsins ef svo skal kalla.  Sumir íslenskir fréttamenn eru mjög ófagmannalegir að mínu mati, leitast oft við að klína óorði á sumar aðila og láta þ.a.l. í ljós sína skoðun ómeðvitað.  Fréttamenn eiga að vera hlutlausir og segja fréttir eins og þeir væru t.d. að lesa úr sagnfræðibók um áhrif iðnbyltingar á Evrópu.  Kannski ekki besta dæmið sem ég hefði getað sett upp en ég er að meina að fréttamenn mega ekki undir neinum kringumstæðum flytja skoðanamyndandi boðskap.

Mínar vangaveltur flytjast að þessu sinni yfir á Gordon Brown nýskipaðan forsætisráðherra Bretlands.  Hann hefur lengi verið á eftir þessu ráðherrasæti í breskum stjórnmálum og loksins er hann komin til valda eftir mikla þolinmæði.  Það má í raun líkja þessu við það að loksins komst Ingibjörg Sólrun og Samfylkingin hennar við stjórnvölin hérna á Fróni eftir mikið streð og puð.  Nú stendur Gordon Brown frammi fyrir því að efna öll sína loforð og vonandi fer hann ekki sömu leið og Ingibjörg og hennar teymi gera hérna á Íslandi að "slá loforðum á frest" eða einfaldlega "slá þau ut af borðinu".  (Sáuð þið málflutninginn minn?  Ég lét óþökk mín í ljós gagnvart Ingibjörg með að skrifa svona um hana; þetta er það sem ég meinti með að fréttaflutningur megi ekki líta út, bara persónulegar skoðanir).

Gordon Brown hefur mikið verið að bítast við Blair undanfarin ár og ekki leynt skoðunum sínum eins og t.d. gagnvart Bandaríkjunum og því samstarfi, einnig varðandi Írak og önnur "mistök" að hans núverandi/þáverandi mati.  Núna er Brown komin til Bandaríkjana og hefur nú þegar lýst þeim sem sínum helsta bandamanni, kom sennilega mörgum í opna skjöldu að hann skildi segja þetta svo hátt og opinberlega.  Það voru eflaust margir sem héldu að nú yrðu samskipti þessara ríkja stirð eftir að Blair færi frá.  Er þetta endilega slæmt, er Brown ekki í raun raunsæjismaður með að segja þetta?  Sama hvað hverjum finnst um Bush þá er samband þessara ríkja alltaf heitbundið og verður það sennilega áfram.  Ég bý sterklega yfir þeirra trú að báðir aðila, jafnframt allir sem eru "með eða mót hverju sem er", vilji öðlast frið og stöðugleika í heiminum.  Ég efast um að nokkur maður vilji óstöðugleika í Afganistan, Írak, Ísrael/Palestínu, Súdan og hvar sem er.  Það er og verður örugglega alltaf stefnan að koma á friði í þessum heimshlutum. 

Stóra vangaveltan er auðvitað alltaf sú, hvaða aðferð er beitt við að ná fram stöðugleika?

Skrifað 30.7.2007 kl. 10:02 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

1 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

26.7.2007

Hrafnhildur Hilmarsdóttir

Til hamingju með nafnið litla frænka!

Við erum stolt af nýja nafninu Hrafnhildur, ég veit að konan mín varð klökk við að heyra þetta, fyrir vikið á maður sennilega aðeins meira í henni
 

Alla vega, þetta er alveg frábært!!!

Skrifað 26.7.2007 kl. 15:43 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

1 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

18.7.2007

Vertu velkomin litla frænka

Salo&Himma-dóttirÞann 15.júlí eignaðist ég litla frænku!  Salome og Himmi, innilega til hamingju!

Af þeim myndum sem ég hef séð að dæma þá er hún algjör dúlla.  Það er gott að rifja upp þá tilfinningu sem maður fékk þegar maður eignaðist sitt fyrsta barn, hún er ólýsanleg! 

Ég veit að þau tvö verða mjög góðir foreldrar, þau passa mjög í þetta hlutverk og það verður gaman að fylgjast með litlu dömunni vaxa og dafna.

Aftur til hamingju, sjáumst á mánudaginn kemur!

Skrifað 18.7.2007 kl. 9:26 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

3 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

12.7.2007

Það er bölvanlegt að keyra hægt

Skoða nánar

7.7.2007

Flugvallapartí 2007

Skoða nánar

4.7.2007

Börn í politískum tilgangi

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290923
Samtals gestir: 70464
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:29:00