Blogg

...endilega láttu heyra í þér

30.6.2007

Góður dagur

30 ára afmæliÞessi dagur hefur verið afar góður, miðað við afmælisdag þá hefur hann verið rólegur og afslappaður.  Í allan dag hefur lognið og sólin leikið við mig, alveg frábært.

Ég byrjaði daginn á því að vera við hestamannamótið, þ.e.a.s. að vinna í dómarahúsinu og mata inn einkunnir í keppninni.  Alveg frábært veður og fallegir hestar.

Kom heim náði mér í smá "fegurðarblund".

Seinni partinn fór ég með familíunni á ættarmót í Merki í Jökuldal en ættin hennar Höbbu var þar að halda upp á daginn, þar var náttúrulega líka alveg frábært veður.  Þarna var samankomin sennilega eitthvað í kring um 150 manns, margir ættliðir og mikið fólk.

Að öllu leyti er ég bara ánægður með góðan dag, takk fyrir mig

Skrifað 30.6.2007 kl. 22:45 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

4 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

29.6.2007

Fjórðungsmót hestamanna

Fjórðungsmót Hestamanna
Þessa helgina hefur verið Fjórðungsmót Hestamanna við Iðavelli, mjög veglegt og flott mót í alla staði.  Ég bauð mig fram við aðstoð og hef aðeins verið að vinna í dómarahúsinu þar, vinn við að mata einkunnir inn í tölvuna og annað þess tengdu.  Ég verð að segja að þetta er bara mjög gaman, hver veit nema hestaáhuginn kvikni aftur?

Á morgun á ég víst afmæli, var eiginlega að fatta þaðp í dag.  Ég er að stefna á fertugsaldurinn og þið getið ekki ímyndað ykkur en ég varla trúi því!  Ég man að mér fannst á sínum tíma fólk sem var orðið þrjátíu ára vera orðið nánast ellidautt.  Garðar er gamall, og hann fílar það.  Ég er ekkert feiminn við aldur, lífið batnar bara með árunum

Hinn fagri hestur Sleipnir frá Gunnarsholti, knapi Sigurður Óli Kristinsson. LJósm:SSPAftur að mótinu, ég hvet alla til að fara á mótið því þetta hefur verið hingað til alveg frábært.  T.d. var ég að horfa á opnu stóðhestakeppnina og verð að segja að mér fannst mikið til koma, þarna léku hestar og knapar hreinlega listir sínar.  Ég sé að ég þarf að koma mér betur inn í þessa íþrótt, áhuginn vaknar meir og meir.

Við sjáumst svo á balli annað kvöld!

Skrifað 29.6.2007 kl. 20:59 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.6.2007

Flakka um landið

Við fjölskyldan höfum verið að flakka um landið, höfum undanfarna daga verið í Selvík sem er við Þrastarlund ekki svo langt frá Selfossi.  Höfum það notalegt í sumarbústað í eigu Landsbankans, flottur og notalegur bústaður, potturinn hefur verið mikið notaður.  Maður vill oft gleyma því hvað það getur verið gaman að ferðast um Frónið, þetta land okkar er alveg yndislega fallegt og ferskt.  Við keyrðum síðastliðin föstudag suðurleiðina áleiðis í bústaðinn og er það leið sem maður fer hvað sjaldnast, yfirleitt brunar maður norðurleiðina, af einhverri óskýranlegri ástæðu.  Landslagið á suðurleiðinni er meiriháttar.

Við höfum svo verið að flakka um svæðið hér í kring með systur minni á mág, þau komu einmitt til að vera með okkur í bústaðnum í nokkra daga.  Við tókum t.d. ferðamannapakkann um Gullfoss og Geysi, fórum þar á undan á Þingvelli og skoðuðum okkur um þar (nota bene ég hef aldrei komið á Þingvelli áður, hálfskammast mín fyrir það).  Ég og Himmi (mágur) fórum í dag og veiddum í Þingvallavatni í alveg yndislegu veðri, samt sem áður voru fiskarnir sem dregnir voru á land alls ekki stórir, bara eiginleg síli.  Dagurinn var samt sem áður alveg frábær.  Á leiðinni í bústaðinn komum við við í Sólheimum og ég verð að segja að sá staður kom mér hreint á óvart, alveg svakalega fallegt þarna!  Ég mæli eindregið með því að fólk kíki þar við næst þegar það á leið hjá.

Á heildina litið hefur þetta ferðalag okkar verið alveg frábær tími, rólegur og notalegur.  Maður lítur í bók annað slagið, eitthvað sem ég geri eiginlega aldrei þar sem ég eyði flestum mínum fríu stundum í tölvuna.  Við spilum minigolf og höfum ótakmarkaðan aðgang að bátum hérna, útivistin er hreint frábær.  Ætli við skellum okkur svo ekki bara til Reykjavíkur á föstudaginn kemur til að vera í örfáa daga, sjáum svo til hvað setur....

Skrifað 20.6.2007 kl. 22:31 af Garðar Valur Hallfreðsson

Bein slóð á færslu

3 álit, skrifaðu líka | Skoða álit sem hafa verið skrifuð

13.6.2007

Hjól til sölu

Skoða nánar

5.6.2007

Ný síða, nýr still, nýr Garðar

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 140
Gestir í dag: 33
Flettingar í gær: 266
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 290923
Samtals gestir: 70464
Tölur uppfærðar: 22.11.2008 08:29:00